Hvers vegna ljósmyndaferðir?

Ljósmyndaáhugi fólks hefur vaxið gríðarlega undanfarin ár. Hvort sem er með snjalltækjum eða myndavélum. Með vaxandi áhuga fólks á ljósmyndun og tækninni sem fylgir hefur landslg atvinnuljósmyndarans breyst. Við sem störfum hjá En route höfum ástríðu fyrir ljósmyndun sem og útivist og ferðalögum. Við höfum sameinað ástríður okkar og útkoman er frábærar ferðir til áhugaverðra staða með megin markmið að fagna andrúmsloftið og upplifunina á mynd.

Við lifum og hrærumst í landslags- og ferðaljósmyndun og með fjölbreyttu og áhugaverðu úrvali ljósmyndaferða aðstoðum við fólk bæði við að læra á tækjabúnaðinn sem það á og fullnýta möguleikana sem tæknin hefur upp á að bjóða. Við kennum myndbyggingu samhliða meðan á ferðinni stendur og lausar stundir eru nýttar í kennslustund í eftirvinnslu. Við förum með fólk á framandi staði og hjálpum því að ná gæðamyndum á heimsmælikvarða. Við göngum svo langt að ábyrgjast að allar okkar ferðir skila afbragðsmyndum.

Margir eru þaulvanir ferðamenn og hafa góða þekkingu á ljósmyndun. Ferðir okkar fara fram úr væntingum, fara með ykkur út af hefðbundinni slóð ferðamannsins og sýna raunverulegt líf og líferni í fjarlægum löndum, nýtt sjónarhorn á þekkt kennileiti. Frábærir leiðsögumenn sem kynna ykkur fyrir landi og þjóð og aðstoða ykkur við að komast á næsta stig sem ljósmyndarar. Aðstoð og leiðsögn er einstaklingsbundin og ávalt einstaklingsmiðuð. Í okkar ferðum færð þú einfaldlega meira en þú getur komist yfir sjálf/ur. Í hverju landi erum við með fólk sem hefur margra ára reynslu, hefur sambönd og tengsl sem bara heimamenn gætu haft, og í löndum eins og Myanmar, Vietnam o.fl. er ferðin aldrei betri en heimamaðurinn sem við notum og við erum eingöngu í samstarfi við þá bestu. Tenglsanetið sem okkar ljósmyndarar eru búnir að koma sér upp með áralangri reynslu er það sem við færum þér.

Með færum innlendum leiðsögumanni fáum við jafnframt túlkl sem miðlar málum og hjálpar okkur að ná tengslum við áhugaverð myndefni. Það er ekki allstaðar töluð enska og án túlks værum við samskiptalaus við heimafólk. Innlendir leiðsögumenn mynda samskiptabrú, passa að þarlend kurteisi sé viðhöfð í samskiptum og fyrir þeirra tilstilli getum við átt von á að vera boðið inn á heimil fólks til að mynda, upplifa og njóta.

Betri myndir eru markmið okkar allra og þekkingin hvenær er best að mynda á hverjum stað, aðgangur að stöðum sem almenningi stendur ekki til boða að heimsækja, kennsla í myndatökum, stillingar, ljósanotkun, ljósmyndun í litlu ljósi, samskipti við heimafólk, tryggingin um heimsklassa myndir, þess vegna velur fólk ljósmyndaferðir.

Eru ljósmyndaferðir bara fyrir “ljósmyndara” ?

Kannast þú ekki við að vera ljósmyndari? En hefur samt gaman af því að taka myndir? Átt þú ekki það nýjasta og flottasta í myndavélagræjum? Hefurðu aldrei myndað neitt nema partýmyndir í útilegu en langar að fara í svona ferð? Tekurðu bara myndir fyrir sjálfan þig því þú hefur gaman af að taka og skoða fallegar myndir?

Ljósmyndaferðir En route eru fyrir alla, alla þá sem hafa áhuga á því að upplifa nýja áfangastaði og langar að koma heim með frábærar myndir.  Það fer eftir stærð hópsins hversu margir ljósmynda-leiðsögumenn eru með í för vegna þess að við viljum sinna öllum vel hvort sem þátttakendur eru byrjendur eða atvinnumenn, það fá allir þá þjónustu sem þeir þurfa.

Hvað með maka, eða vin, sem langar að koma með? Kemur þeim til með að leiðast þó þeir séu ekki með myndavél? Ferðir okkar eru einstaklega vel til þess fallnar að sameina sem ævintýra- og ljósmyndaferð. Allir sem hafa áhuga á ferðalögum og fallegu landslagi, að hitta fólk og upplifa menningu annara þjóða njóta ferðanna með okkur. Við höfum víðtæka reynslu í að hanna ferðir fyrir ævintýrafólk og fólk sem vill sameina ferðaáhugann og ljósmyndun. Ljósmyndaferð er síst ferð fyrir þá sem leita að slökun eða djammferð. Við tökum daginn almennt snemma og dagurinn getur verið langur, en allan daginn erum við að sjá og upplifa nýja og áhugaverða hluti.

Vertu áskrifandi

áhugavert efni og tilboð

Póstlisti

*Við munum aldrei senda þér spam