frá Kr. 1,295,000
Bóka núna

VÍETNAM – 16 daga ljósmyndaferð

Not Rated
Created with Sketch.

Lengd ferðar

16 dagar, 15 nætur

Created with Sketch.

Tegund ferðar

Alferð

Created with Sketch.

Stærð hóps

8 manns

Created with Sketch.

Tungumál

enska, íslenska

Yfirlit

Ferðin er 14. ágúst  2026
Upplýsingar um verð og skilmála

Verð: ISK 1.295.000 á mann, miðað við 2gja manna herbergi
Viðbótargjald fyrir sérherbergi ISK 143.000

Staðfestingargjald við bókun ISK 250.000

Breyting á gengi gæti breytt verðinu, en með staðfestingargreiðslu er auglýst verð tryggt.

Innifalið í ferð er EKKI millilandaflug til/frá Vietnam
Skilmálar En Route Ljósmyndaferða má finna hér.

Við kynnum með stolti VIETNAM 2026.

Ferða- og landslagsljósmyndaferð til Vietnam með En Route Ljósmyndaferðum
Þessi 16 daga ferð er sú viðamesta ljósmyndaferð sem í boði er og spannar allt frá nyrsta hluta Vietnam, alveg við landamæri Kína til syðsta hluta landsins. Til að komast á milli notum við, þægilegar smárútur, ferjur, báta og í 3 lengstu leggjunum ferðumst við með flugi. Ferðina leiða tveir heimsklassa ljósmyndarar sem tryggja að þú náir verðlaunamyndum sama hvert getustig þitt er í ljósmyndun, fara með þig á staði og setja upp tökur sem gæti reynst þér mjög erfitt ef þú ætlaðir að gera þetta á eigin spýtur. Einnig er “venjulegur” leiðsögumaður og túlkur sem passar upp á að ferðins verði skemmtileg og þægileg. Við gistum á góðum fjögurra stjörnu hótelum, en sumstaðar er ekki um neitt fínerí að ræða, og gistum við þá á bestu hótelum sem eru í boði. Við borðum “local” mat, en Víetnömsk matargerð er rómuð, og ef þú ert fyrir að prófa að borða “skrítinn” mat.. Þá er Víetnam ákkúrat staðurinn fyrir þig.

Þetta verður ferð lífs þíns!

Víetnam er staðsett í Suðaustur-Asíu og sönn fjársjóðskista, bæði landfræðilega fjölbreytt en um leið menningarlega flókið land. Íbúafjöldi er 97 milljónir og þekkt fyrir gestrisni enda heimamenn með eindæmum friðsælt og gott fólk, bæði í iðandi borgum og rólegum þorpum innfæddra ættbálka. Við ferðumst með vatnaleiðum um landið og upplifum heillandi líf landsmanna frá fyrstu hendi. Landið jafnt sem íbúarnir eru heillandi. Hér er myndefni við hvert fótmál og því auðvelt að fara heim með mörg meistaraverk í farteskinu vegna samsetningar lita og ljóss í töfrandi aðstæðum. Stórkostleg náttúrufegurð, einstök matreiðsla og litríkir markaðir taka fólki opnum örmum.

Lífsreynsla sem vert er að deila

Ljósmyndaferðin til Víetnam er vafalaust ein af okkar uppáhalds og áhrifamestu ferðum. Upplifunin er einstök og hvetjum við ljósmyndara til að njóta upplifunarinnar með maka, vin systkini eða öðrum nákomnum. Ferðin er upplifun fyrir hvern þann sem skráir sig, óháð ljósmyndaþættinum, allir munu upplifa einstakan og ótrúlegan tíma í Víetnam. Við munum deila óvenjulegri reynslu af menningarlegum verðmætum, fornum hefðum, hefðbundnum matarhefðum og tælandi náttúru, uppllifun sem skilur okkur eftir með gnótt minninga ævina út.

Teymi leiðsögumanna og ljósmyndara

Leiðsögumenn hópsins eru þrír. Ljósmyndarar eru tveir: Óli H., sem er kraftmikill og drífandi atvinnuljósmyndari sem hefur sérhæft sig í ferða- og landslagsljósmyndun auk brúðar- og auglýsingaljósmyndunar. Nguyen Vu Phuoc er þekktur ljósmyndari í Vietnam með miklar tengingar við heimafólk sem gefur hópnum færi á að fara inn á vinnusvæði og heimili fólks og kynnast raunverulegum lífsháttum fólks í landinu og skrásetja á myndform. Nguyen starfar bæði sem leiðsögumaður og ljósmyndari og er ástríðufullur þegar kemur að þjóðararfleifð sinni og hinnu sönnu birtingarmynd Vietnam. Þá fylgir þeim einnig frábær innlendur leiðsögumaður og túlkur.

Óli H., er fararstjóri ferðarinnar.
Óli rekur En route ehf. ferðaskrifstofu sem sérhæfir sig í ljósmyndaferðum fyrir ljósmyndara, bæði áhugaljósmyndara og atvinnumenn. Óli er kerfisfræðingur, vefhönnuður og ljósmyndari að mennt. Óli hefur frá unga aldri heillast af ljósmyndun en hann ólst upp á vinnustofum þekktra ljósmyndara í Reykjavík þar sem móðir hans starfaði sem aðstoðarmaður ljósmyndara. Óli lagði þó listina á hilluna til að sækja nám í tölvufræðum. Í hartnær 20 ár starfaði hann á sviði auglýsinga- og markaðssetningar og kenndi samhliða því tölvufræði s.s. kerfisfræði og myndvinnslu. Myndavélin var þó aldrei langt undan og á endanum ákvað hann að söðla um og skráði sig í Tækniskólann til að ljúka námi sem ljósmyndari. Óli tók í kjölfarið nemastöðu hjá Jóni Páli ljósmyndara. Óli er frábær kennari, vel að sér í málefnum líðandi stundar og mikill áhugamaður um tækninýjungar í ljósmyndabransanum. Hann elskar að ferðast, uppgötva nýja staði og fara ótroðnar slóðir. Óli er þekktur fyrir einstakan húmor, létta nærveru og opinskáa tilsögn. Hann er óþreytandi í að leita að nýjum sjónarhornum og nýjum sögum, sögum sem hann endursegir listilega með myndformi sínu. Óli heldur úti vefsíðu með verkum sínum OliH Photography einnig er hann með YouTube rás þar sem hann fjallar um ferðalög sín, birtir kennslumyndbönd og lýsir daglegum áskorunum ljósmyndarans.

 


Phuoc er einn besti alhliða ljósmyndari í Vietnam. Hann hefur einstakt auga fyrir ferðaljósmyndun og sér myndatækifæri á hverju götuhorni. Hann hefur jafnframt náð einstakri hæfni í notkun dróna. Hann hefur frábæra frásagnargáfur og notar myndformið til að segja samtímasögur jafnt sem skrásetningarform en hann er þekktur fyrir að taka fyrir óhefðbundin og umdeild myndefni s.s. hin sorglegu áhrif af Agent Orange og fórnarlömd sýruárása. Hvarvetna er Nguyen þekktur fyrir léttan húmor og þægilega nærveru og áhugaverðar og jafnframt persónulegar myndir. Hann hefur einstakt auga og fljótur að sjá áhugaverð sjónarhorn og þar sem hann er léttur á fæti hikar hann ekki við að klifra, príla eða jafnvel hanga á hvolfi til að ná sjónarhorninu sem hann vil ná. Nguyen gerir hvað sem til þarf : “Því það er bara hluti af því að vera ljósmyndari” segir hann. Nguyen hlaut mikið lof fyrir bók sína: Labor of Love – A Mother’s Journey, þar sem andargift hans var eiginkona hans og ófædd dóttir. Auk þess hefur hann fengið yfir 300 viðurkenningar í bæði Vietnam og víðar um heim m.a. hin virtu Federation International de L’ Art Photographique (FIAP) commendation of excellence in the photographic arts. Nguyen er m.a. meðlimur í Vietnam Association of Photographic Artists, Photographic Society of America, Turkey Photographic Sille Sannat Sarayi og Ho Chi Minh City Photographic Association.Með þessa tvo samstilltu og frábæru ljósmyndaleiðsögumenn munt þú njóta einstakrar upplifunar, bæta þekkingu þína á sviði ljósmyndunar og myndvinnslu um leið og þú bætir dýrmætum ljósmyndum í myndasafn þitt.

Hvers vegna ferðast með En Route Ljósmyndaferðum?

  • Með hópnum eru 2 frábærir ljósmyndarar, þar af annar heimamaður, báðir reyndir leiðsögumenn og leiðbeinendur
  • Framúrskarandi umsagnir og bestu meðmæli frá fyrri ferðum
  • Einstakur túlkur og leiðsögumaður fylgir hópnum
  • Afburða þekking á staðháttum, hvenær er best að mynda hvern stað og góð tengingu við heimamenn
  • Snyrtileg og góð hótel, í nálægð við helstu áfangastaði til að lágmarka keyrslu
  • Mikil og persónuleg aðstoð á tökustað, eins og hentar hverjum, t.d. við stillingar og myndbyggingu
  • Fyrirlestrar og kennsla í eftirvinnslu
  • Þægileg loftkæld farartæki
  • Iceland En Route er viðurkennd ferðaskrifstofa á vegum Ferðamálastofu
Sjá meira

HÁPUNKTAR

  • Árleg ferð, næsta ferð: 14. ágúst – 29. ágúst 2026
  • Ljósmyndarar og leiðsögumenn: Oli H ásamt Nguyen Vu Phuoc
  • Ásamt innlendum leiðsögumanni og túlk
  • Lengd: 16 dagar (15 nætur)
  • Stærð hóps: 4-8 ljósmyndarar.
  • Erfiðleikastig: Auðvelt. Engar lengri göngur/fjallgöngur.
  • Ferðin hentar fyrir alla, óháð þekkingu og reynslu í ljósmyndun
  • - einnig hentug ferð til að taka með ferðafélaga/maka/vin

Dagskrá

Dagskrá ferðar
Dagskrá ferðar

Endanleg dagsrká er á aðalsíðu okkar, smelltu hér
.
Dagsráin er á ensku, ef þú ert í einhverjum vandræðum með enskuna þá máttu hafa samband við Óla (
oli hja enroute.is

) og hann aðstoðar þig eftir þörfum.
Það er alltaf íslenskumælandi leiðsögumaður með í ferðinni sjálfri.

Included/Excluded

  • Öll gisting
  • Fullt fæði (morgunverður, hádegisverður og kvöldverður)
  • Ferðamáti innanlands: Loftkæld rúta milli áfangastaða, einka bátar, ferjuferðir, innanlandsflug
  • Íslensku- og enskumælandi leiðsögn allan tímann
  • Fyrirsætulaun þar sem það á við
  • Allur aðgangseyrir í hof, garða skv. leiðarlýsingu
  • Vatnsflöskur í rútu
  • Millilandaflug til/frá Vietnam (aðstoð veitt við bókun/val á flugi)
  • Lækniskostnaður / bólusetningar
  • Auka gistinætur fyrir/eftir ferð skv. lýsingu
  • Aðrar máltíðir en nefndar
  • Þjórfé fyrir hótelstarfsfólk, bílstjóra eða leiðsögumenn
  • Vegabréfsáritun til Vietnam
  • Ferðatryggingar og önnur þjónusta sérstaklega nefnd
  • Annað sem ekki er nefnt sem innifalið

Tour's Location

Algengar spurningar

Hversu löng er ferðin?
16 dagar, 156 nætur með komu- og brottfarardegi.
Er mælt með að mæta áður?
Svarið er einistaklingsbundið - ef þú finnur fyrir flugþreytu eftir lengri flug þá mælum við með því. Algengt er að fólk mæti amk sólarhring áður en ferð hefst, til að jafna sig á flugþreytu og byrja að venjast hita og rakamun.
Hvar er best að panta flug?
Við mælum með að nota bókunarsíður sem ábyrgjast að tengingar náist og endurbóka að kostnaðarlausu ef tafir eða aflýsingar verða á leiðinni.
Þarf vegabréfsáritun til Víetnam?
Já, þú færð sér póst með tengli inn á umsókn fyrir vegabréfsáritun eftir að bókun er lokið.
Þetta er hins vega mjög einfalt og þægilegt kerfi, gert á netinu og tekur yfirleitt ekki nema nokkra klukkutíma, þó þeir gefi sér allt að 2 sólahringa til að afgreiða það.
Ef þú verður beðin um bréf frá ferðaskrifstofu (Invitation letter), þá einfaldar það ferlið enn frekar, þú getur fengið það hjá okkur.
Er ferðin eingöngu fyrir ljósmyndara?
Nei, ferðin hentar öllum sem áhuga hafa á framandi áfangastöðum. Áhersla er á að allir komi heim með farteskið fullt af myndum og góðum minningum, hvort sem myndirnar eru teknar á síma eða myndavél. Upplifunin er einstök fyrir hvern þann sem skráir sig, óháð ljósmyndaþætti eða kunnáttu, allir munu upplifa einstakan og ótrúlegan tíma í Víetnam.

Ljósmyndahæfni/skilyrði: Engar forkröfur
Þarf ég bólusetningu?
Svarið er einstaklingsbundið. Við mælum með að fólk sé með allar bólusetningar uppfærðar. Embætti Landlæknis sér um bólusetningar ferðamanna, sjá hlekk: https://www.landlaeknir.is/smit-og-sottvarnir/bolusetningar/bolusetningar-ferdamanna/
Created with Sketch.
frá Kr. 1,295,000

Þú gætir einnig haft áhuga á

Vertu áskrifandi

áhugavert efni og tilboð

Póstlisti

*Við munum aldrei senda þér spam