Þessi ferð verður mjög líklega aftur á dagskrá hjá fljótlega. Endanlegar dagsetningar og verð auglýst síðar.
Í Kanada eru Klettafjöllin þekkt fjallasvæði, í daglegu tali kallað “The Canadian Rockies” svæðið er óbyggt og gróft og skemmtilegt yfirferðar allt árið um kring. Hins vegar er vetrar ljósmyndun þar einstök. Klettafjöllin bjóða upp á einstakt tækifæri til að mynda á svæðum sem eru ófær á öðrum árstímum. Komdu með okkur í vetrarferð til að mynda frosna fossa, ísfyllt gil og til að ganga á frosnum vötnum með frosnum metan gasbólum. Sums staðar munum við einnig mynda ófrosin en spegilslétt vötn. Þessar sérstöku aðstæður gefa okkur færi á að mynda speglun fallegra fjalla við sólarupprás og sólsetur. Ferðast er á nægilega norðarlega til að eiga möguleika á norðurljósum við sömu aðstæður.